Menu
Skyrkaka með bökuðum eplum, pekanhnetum og karamellu

Skyrkaka með bökuðum eplum, pekanhnetum og karamellu

Einföld, fersk og góð skyrterta.

Innihald

12 skammtar

Botn:

Lu Bagstone kanil kex
smjör

Skyrkaka:

Ísey skyr með bökuðum eplum
rjómi frá Gott í matinn
kanill
dökkur púðursykur

Toppur:

pekanhnetur
rautt epli
kanill
Karamellusósa

Skref1

  • Setjið kanilkexið í matvinnsluvél og hakkið þar til kexið er orðið fínmalað.
  • Bræðið smjör og hellið því saman við kexið og hrærið vel saman.
  • Setjið kexblönduna í hringlaga form um 22 cm að stærð og þrýstið kexblöndunni vel niður í botninn og upp á hliðar formsins. Gott er að nota botninn á glasi til þess að þrýsta kexinu vel niður.
  • Setjið formið inn í ísskáp á meðan þið undirbúið skyrkökuna.

Skref2

  • Þreytið rjóma og hrærið saman við skyrið ásamt kanil og púðursykri. Hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
  • Hellið skyrblönduni yfir kexbotninn og sléttið út með sleif.
  • Skerið epli í sneiðar og raðið þeim ofan á skyrkökuna. Stráið kanil yfir eplin.
  • Skerið pekanhneturnar gróflega niður og setjið ofan á eplin ásamt karamellusósunni.
  • Best er að bera kökuna fljótlega fram eftir að þið hafið sett eplin ofan á. Geymið í kæli þar til kakan er borin fram. 

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir