Menu
Skyrkaka með bláberjum og jarðarberjum

Skyrkaka með bláberjum og jarðarberjum

Innihald

12 skammtar

Botn:

hafrakex
smjör

Skyrkaka:

KEA skyr með bláberjum og jarðarberjum
rjómi
flórsykur (meira fyrir þá sem vilja sætari köku)
kókos
bláber
matarlímsplötur
mjólk

Toppur:

Bláber
Jarðarber
Ristaður kókos

Botn

  • Setjið hafrakexið í matvinnsluvél og hakkið þar til kexið er fínmalað.
  • Bræðið smjörið og blandið því saman við og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
  • Setjið smjörpappír í botninn á hringlaga formi sem er um 18-20 cm að stærð.
  • Setjið kexblönduna í formið og þrýstið vel niður í botninn, gott er að nota botninn á glasi til þess að þrýsta kexinu niður og slétta úr því.
  • Geymið í kæli á meðan þið undirbúið rest. 

Skyrkaka

  • Setjið matarlímsblöðin í skál með köldu vatni og látið þau liggja í bleyti í rúmar 5 mín. Þeytið rjóma og hrærið saman við skyrið ásamt flórsykri.
  • Kreistið vatnið úr matarlímsblöðunum og setjið í pott ásamt mjólkinni.
  • Hitið yfir lágum hita og hrærið þar til matarlímið hefur leystst alveg upp.
  • Hellið matarlímsblöndunni saman við skyrblönduna og hrærið vel.
  • Blandið kókos og bláberjum saman við og hrærið með sleif.
  • Hellið skyrblöndunni yfir botninn, setjið plastfilmu yfir kökuformið og kælið í 8 klst.
  • Takið kökuna út úr kælinum, gott er að nota heitan hníf til þess að skera meðfram köntum formsins til að losa kökuna.
  • Smellið forminu af og setjið kökuna á disk.
  • Skreytið með ferskjum bláberjum, jarðarberjum og ristuðum kókos að vild.
  • Gott er að bera fram með þeyttum rjóma. 

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir