Menu
Dásamleg skyrkaka með hindberjum og hvítu súkkulaði

Dásamleg skyrkaka með hindberjum og hvítu súkkulaði

Setjið kex í matvinnsluvél og hakkið þar til kexið er fínmalað. Bræðið smjör og blandið saman við og látið matvinnsluvélina vinna. Setjið smjörpappír í botninn á hringlaga smelluformi um 20-22 cm að stærð. Setjið kexblönduna í formið og þrýstið vel niður í botninn, gott er að nota botninn á glasi til þess að þrýsta kexinu niður og upp á hliðar formsins. Geymið botninn í kæli á meðan þið undirbúið rest.

Skyrkaka

Setjið matarlímsblöð í skál með köldu vatni og látið liggja í bleyti í rúmar 5 mínútur. Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði eða á lágum hita og látið kólna örlítið áður en þið blandið því saman við skyrið. Þeytið rjóma og hrærið saman við skyrið ásamt flórsykri. Blandið hvíta súkkulaðinu saman við og hrærið vel. Kreistið vatnið úr matarlímsblöðunum og setjið í pott ásamt mjólkinni. Hitið yfir lágum hita og hrærið þar til matarlímið  er búið að leysast alveg upp. Hellið matarlímsblöndunni saman við skyrblönduna og hrærið vel. Setjið hindberin saman og hrærið létt. Hellið skyrblöndunni yfir botninn, setjið plastfilmu yfir kökuformið og kælið í 8 klst. eða yfir nótt. Þegar þið takið skyrkökuna úr forminu er gott að nota beittan hníf og skera meðfram köntum formsins áður en þið losið formið utan af. Setjið kökuna á fallegan disk og skreytið.

Toppur

Þeytið rjóma og setjið yfir kökuna ásamt ferskum hindberjum. Hér er notast við sprautustút 1M til að mynda rósir úr rjómanum. Geymið í kæli þar til kakan er borin fram og sigtið þá mögulega smá flórsykur yfir ef þið viljið.

 

Innihald

1 skammtar

Botn:

kanilkex
smjör

Kakan:

KEA vanilluskyr
rjómi
flórsykur
hvítt súkkulaði
matarlímsblöð
mjólk
hindber, frosin eða fersk

Toppur:

rjómi
fersk hindber

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir