Menu

Innihald

1 skammtar

Botn:

Oreo kexkökur
smjör

Skyrkaka:

KEA vanilluskyr
rjómi frá Gott í matinn
flórsykur (meira fyrir þá sem vilja sætari köku)
matarlímsblöð
mjólk
Oreo kexkökur

Toppur:

rjómi frá Gott í matinn
Oreo kex (4-6 stk)
súkkulaðisíróp

Botn

  • Bræðið smjór og setjið í matvinnsluvél ásamt Oreo kexkökum og hakkið þar til kexið er fínmalað.
  • Setjið smjörpappír í botninn á hringlaga smelluformi, um 22 cm að stærð.
  • Setjið kexblönduna í formið og þrýstið vel niður í botninn, gott er að nota botninn á glasi til þess að þrýsta kexinu niður og slétta úr því.
  • Geymið í kæli á meðan þið undirbúið rest.

Fylling

  • Setjið matarlímsblöðin í skál með köldu vatni og látið þau liggja í bleyti í rúmar 5 mín.
  • Þeytið rjóma og hrærið saman við skyrið ásamt flórsykri.
  • Setjið Oreo kexkökurnar í matvinnsluvél og hakkið þar til þær er orðnar fínmalaðar, blandið þeim saman við skyrblönduna og hrærið.
  • Kreistið vatnið úr matarlímsblöðunum og setjið í pott ásamt mjólkinni.
  • Hitið yfir lágum hita og hrærið þar til matarlímið er búið að leysast alveg upp.
  • Hellið matarlímsblöndunni saman við skyrblönduna og hrærið vel.
  • Hellið skyrblöndunni yfir botninn, setjið plastfilmu yfir kökuformið og kælið í 8 klst.
  • Takið kökuna út úr kælinum, gott er að nota heitan hníf til þess að skera meðfram köntum formsins til þess að losa kökuna.
  • Smellið forminu af og setjið kökuna á disk.

Toppur

  • Þeytið rjóma þar til hann stendur, sprautið rjómanum fallega á ystu brúnir kökunnar (t.d. með stút nr. 1M) eða setjið hann yfir alla kökuna.
  • Skerið Oreo kexkökur gróflega niður og setjið í miðjuna á kökunni ásamt súkkulaðisírópi.
  • Skreytið kökuna með Oreo kexkökum að vild.
  • Geymið kökuna í kæli þar til hún er borin fram.
  • Auðvelt er að frysta skyrkökur í allt að 3 mánuði.

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir