Menu
Marengsbomba

Marengsbomba

Einfaldur og syndsamlega góður eftirréttur sem leikur einn er að útbúa!

Innihald

8 skammtar
marengsbotn
rjómi frá Gott í matinn, þeyttur
Nóa Kropp
kókosbollur
jarðarber
bláber
súkkulaðisíróp

Skref1

  • Snilldin við þessa marengsbombu er sú að í rauninni skiptir engu máli hvernig þú raðar innihaldinu í skálina, svo það er um að gera að láta sköpunargáfuna njóta sín. Það sem skiptir máli er að bleyta marengsinn í rjóma.
  • Ein hugmynd er að byrja á að setja Nóa Kropp neðst í skálina, þeyttan rjóma ofan á og brjóta helminginn af marengsinum yfir rjómann og setja svo meiri rjóma yfir.
  • Því næst eru jarðarberin skorin í sneiðar og þeim raðað meðfram hliðum skálarinnar, nokkur brytjuð niður og sett í miðjuna ásamt því að setja súkkulaðisíróp yfir jarðarberin.

Skref2

  • Síðan eru kókósbollurnar skornar niður í sneiðar og þeim raðað ofan á.
  • Því næst er lag af rjóma sett í skálina og marengs yfir ásamt bláberjum.
  • Svo er bara að enda á því að setja rjóma ofan á og skreyta með afgangs rjómanum ásamt jarðarberjum og bláberjum.
  • Það allra síðasta er svo að sprauta súkkulaðisírópi yfir marengsbombuna.

Skref3

  • Gott er að setja bombuna inn í frysti í rúmar 30 mínútur.
  • Fyrir þau ykkar sem viljið ekki frysta rjómann aðeins þarf að geyma réttinn í kæli þar til hann er borinn fram

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir