Menu
Sykurhúðaður appelsínubörkur

Sykurhúðaður appelsínubörkur

Sérlega góðir bitar með ilmandi kaffibolla.

Innihald

1 skammtar
appelsínur
sykur
vatn

Skref1

  • Skerið börkinn í nokkuð mjóar ræmur.

Skref2

  • Setjið börkinn í pott og hellið kalt vatn yfir börkinn.
  • Látið suðuna koma upp.
  • Endurtakið þetta 4 sinnum.

Skref3

  • Dreifið börkinn á bökunarpappír og látið hann þorna aðeins.

Skref4

  • Mælið sykur og vatn og hellið í pott.
  • Látið suðuna koma upp og sjóðið á vægum hita í um 6-8 mínútur.
  • Ekki hræra í þessu, þá gæti sykurinn kristallast og það viljum við ekki.

Skref5

  • Setjið börkinn ofan í sykurlöginn, lækkið hitann aðeins og látið sjóða í rúmlega 45 - 60 mínútur eða þar til börkurinn er orðinn glær og sykurinn næstum því orðinn að engu.

Skref6

  • Setjið börkinn á bökunargrind og látið hann þorna þar í 4-5 klukkutíma eða yfir nótt.

Höfundur: Theodóra J. Sigurðardóttir Blöndal