Skref1
- Hafrakexið mulið, gott er að setja kexið í matvinnsluvél en þá þarf að gæta þess að kexið verði ekki of fínt mulið.
- Smjörið er brætt, sykrinum og smjörinu blandað saman við kexið, blandað vel saman og þrýst í botninn á litlu eldföstu móti.
- Sett í kæli.
Skref2
- Þeytið jógúrtina í hrærivél og hellið rjómanum rólega út í.
- Við þeytinguna eykur blandan rúmmál sitt um helming og er fullþeytt þegar mjúkir toppar myndast og blandan heldur formi.
- Hraðinn minnkaður og flórsykri og kanil bætt út í í lokin.
- Þegar jógúrtblandan er klár er berjunum dreift yfir kexbotninn, jógúrtblöndunni hellt yfir og hún jöfnuð í formið með skeið og skreytt með súkkulaði.
- Gott að setja í kæli í a.m.k. 30 mínútur áður en rétturinn er borinn fram. Ekkert síðra daginn eftir.
Höfundur: Ólafur Unnarsson