Menu
Brownie veislubitar

Brownie veislubitar

Dásamlega góðir með kaffibollanum.

Innihald

1 skammtar
Smjör
Suðusúkkulaði
Sykur
Vanilludropar
Egg
Bökunarkakó
Salt
Hveiti
Suðusúkkulaði dropar

Súkkulaði ganacé:

Smátt saxað suðusúkkulaði
Rjómi frá Gott í matinn

Skref1

  • Hitið ofninn 175°C.
  • Bræðið saman suðusúkkulaði og smjör, leggið til hliðar.
  • Setjið sykur og vanilludropa í hrærivélarskálina og hellið súkkulaðiblöndunni saman við.
  • Því næst fara eggin út í, eitt í einu og skafið niður á milli.
  • Bökunarkakó, salti og hveiti er blandað saman í skál og sett út í súkkulaðiblönduna í litlum skömmtum þar til vel blandað.
  • Að lokum er suðusúkkulaðidropunum blandað saman við.
  • Klæðið bökunarskúffu með bökunarpappír og spreyið með matarolíuspreyi.
  • Hellið deiginu í skúffuna og bakið í um 50 mínútur eða þar til prjónn kemur út aðeins með smá kökumylsu á (ekki blautu deigi)
  • Kælið vel.

Skref2

  • Hitið rjómann að suðu og hellið yfir saxað súkkulaði.
  • Leyfið að standa í 1-2 mínútur og hrærið þá saman með písk eða gaffli þar til falleg súkkulaðibráð hefur myndast og allt súkkulaði er bráðið.
  • Hellið yfir kökuna og smyrjið jafnt á hana, leyfið kreminu þá að þykkna betur og kólna aðeins áður en þið stráið flórsykri yfir hana til skrauts.
  • Þegar kremið hefur kólnað vel er kakan skorin í hæfilega stóra bita.

Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir