Skref1
- Ofnhiti: 180 °C
- Mældu þurrefnin og blandaðu þeim saman í skál.
- Blandaðu volgu vatninu saman við olíuna, helltu því saman við hveitið og hrærðu í deig.
- Bættu hveiti við eftir þörfum og hnoðaðu þar til deigið sleppir auðveldlega frá hliðum skálarinnar.
Skref2
- Láttu deigið hefast á hlýjum stað þar til það hefur tvöfaldast.
- Settu fræin sem þú ætlar að nota í skálar.
- Hafðu form (smelluform eða annað mátulegt form sem rúmar 20-24 bollur) tilbúið til að raða bollunum í og settu í það bökunarpappír.
Skref3
- Taktu deigið úr skálinni og hnoðaðu það varlega með hveiti eftir þörfum.
- Rúllaðu deigið í eina lengju og skerðu það í bita (þetta verða um 20-24 bollur).
- Taktu einn bita, rúllaðu í kúlu og dýfðu í eina tegund af fræ eða kryddi. Raðaðu fyrstu bolluna í miðju formsins.
- Taktu næsta bita, rúllaðu í bollu og dýfðu í aðra tegund af fræi (eða kryddi). Settu þessa bollu og þær næstu í hring í kringum bolluna í miðjunni með mismunandi fræjum (eða kryddi) ofan á. Haltu þessu áfram þar til formið er orðið fullt af fallegum bollum.
- Láttu brauðið hefast þar til tvöfalt.
- Bakaðu brauðið neðarlega íofninum í um 30 mínútur.
Höfundur: Theodóra J. Sigurðardóttir Blöndal