Menu
Morgunboozt með hnetusmjöri og döðlum

Morgunboozt með hnetusmjöri og döðlum

Fljótlegt og bragðgott boozt sem er gott að grípa með sér út í daginn. 

Innihald

1 skammtar
grísk jógúrt
banani eða mangó
möndlur
döðlur
gróft hnetusmjör
chiafræ eða önnur fræ, t.d. hörfræ
appelsínusafi, magn eftir smekk
klakar

Aðferð

  • Setjið allt í blandarann og blandið þar til drykkurinn verður silkimjúkur.
  • Berið strax fram og njótið.

Höfundur: Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir