Menu
Bláberjakaka í einum grænum

Bláberjakaka í einum grænum

Fyrir sex manns. Gott er að bera kökuna fram með rjóma, ís eða grískri jógúrt.

Innihald

1 skammtar
egg
sykur
hveiti
matreiðslurjómi frá Gott í matinn
vanilla
sjávarsalt á hnífsoddi
smjör
bláber, fersk eða frosin
flórsykur
léttþeyttur rjómi, ís eða grísk jógúrt

Skref1

  • Stillið ofninn á 200°.
  • Hrærið saman með píski fyrstu sex hráefnin. Geymið.

Skref2

  • Setjið smjörið í bökunarform sem er um 22-24 cm í þvermál.
  • Stingið því inn í heitan ofninn og eldið í tæpar 5 mínútur.
  • Takið út úr ofninum og hellið deigblöndunni strax ofan í formið.
  • Sáldrið bláberjum yfir.
  • Bakið í um 15 mínútur.
  • Sáldrið vel af flórsykri yfir

Höfundur: Erna Sverrisdóttir