Menu
Bakaður Gullostur með berjum og kasjúhnetum

Bakaður Gullostur með berjum og kasjúhnetum

Innihald

6 skammtar
Gullostur
Brómber
Bláber
Púðursykur
Kókosolía
Smátt saxað rósmarín
Kasjúhnetur

Skref1

  • Hitið Gullostinn á bökunarpappír eða í eldföstu fati við 180°C í um 20 mínútur.

Skref2

  • Setjið brómber, bláber, púðursykur, kókosolíu og smátt saxað rósmarín í pott á meðan, hitið að suðu og lækkið þá hitann niður.
  • Leyfið að malla í nokkrar mínútur þar til sykurinn er uppleystur.

Skref3

  • Hellið yfir ostinn þegar hann kemur úr ofninum og stráið einnig kasjúhnetum yfir.
  • Berið fram með góðu kexi.

Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir