Menu
Súkkulaði kaffikaka

Súkkulaði kaffikaka

Þriggja hæða súkkulaði kaffi dásemd sem er vel þess virði að prófa. Einstaklega sparileg kaka sem nýtur sín vel á hvaða veisluborði sem er.

Innihald

4 skammtar

Súkkulaðibotn

Egg
Sykur
Súkkulaði
Smjör
Sterkt espressokaffi
Hveiti
Lyftiduft

Ostakrem

Rjómaostur frá Gott í matinn
Flórsykur
Rjómi frá Gott í matinn
Sterkt espressokaffi
Matarlímsblað

Jógúrt súkkulaðikrem

Dökkt súkkulaði
Rjómi frá Gott í matinn
Matarlímsblöð
Grísk jógúrt frá Gott í matinn
KEA skyr vanillu

Skref1

  • Bræðið saman súkkulaði, smjör og kaffi.
  • Þeytið saman eggjum og sykri þangað til létt og ljóst. Blandið saman við súkkulaðið.
  • Sigtið hveiti og lyftidufti saman við.
  • Setjið í springform (um 22 cm) með smjörpappír í botninum.
  • Bakið við 165°C í 25-30 mínútur.
  • Kælið örlítið, losið úr forminu.
  • Leggið súkkulaðibotninn á smjörpappír og setjið aftur í springformið.

Skref2

  • Leggið matarlím í bleyti.
  • Þeytið rjómann.
  • Hrærið saman rjómaosti og flórsykri og blandið við rjómann.
  • Leysið matrlímið upp í kaffi og blandið saman við blönduna.
  • Setjið yfir súkkulaðibotninn og kælið.

Skref3

  • Leggið matarlím í bleyti í köldu vatni.
  • Bræðið saman súkkulaði og rjóma, bætið við matarlímið og hrærið saman við vanilluskyr og hreina jógúrt.
  • Hellið yfir ostakremið og látið standa í kæliskáp í minnst fjóra tíma.

Höfundur: Árni Þór Arnórsson