Menu
Kjúklinga fajitas með guacamole

Kjúklinga fajitas með guacamole

Einföld og skemmtileg útfærsla af mexíkóskum vefjum og ekki skemmir heimatilbúið guacamole fyrir.

Innihald

1 skammtar

Kjúklinga fajitas

pakki kjúklingalundir
Tortillas
Rifinn mozzarella ostur frá Gott í matinn
Sýrður rjómi frá Gott í matinn
rauð papríka
gul papríka
laukur
Ólífuolía til steikingar
Fajitas krydd í bréfi
Smá salt og cayenne pipar

Guacamole:

avocado (4-5 stk. mjúk)
bolli ferskt kóríander
rauðlaukur
hvítlauksrif
lime, kreist
Litlir tómatar

Skref1

  • Steikið grænmetið þar til það hefur brúnast og setjið til hliðar.
  • Steikið kjúklinginn upp úr ólífuolíu eða smjöri og kryddið með Fajita kryddi og smá cayenne pipar. Brúnið kjúklinginn vel.
  • Hitið tortilla í ofni skv. leiðbeiningum og fyllið þær með steiktum kjúklingi, grænmeti, guacamole, sýrðum rjóma og mozzarella osti.
  •  
  •  

Skref2

  • Hægt er að kaupa tilbúið guacamole eða útbúa það sjálfur á einfaldan hátt.
  • Allt sett saman í matvinnsluvél, nema tómatarnir, þar til hráefnin hafa blandast vel saman.
  • Litlir tómatar eru saxaðir mjög smátt eftir á og hrært saman við.

Höfundur: Tinna Alavis