Menu
Ostasamlokur með Óðalsostum

Ostasamlokur með Óðalsostum

Að elda ostasamloku er einfalt. Ofur einfalt. Og ef það er gert rétt er það alveg einstaklega ljúffengt. Það eru nokkur skref sem þarf að fylgja.

Almennt er það nú þannig að einfaldur matur byggir á því að maður noti góð hráefni. Og þar leikur osturinn auðvitað lykilhlutverk.

Innihald

2 skammtar
Brauðsneiðar
Dijonsinnep (gott að sæta með smá hlynsírópi)
Ferskt timjan
Nóg af rifnum Óðals Búra
Nóg af rifnum Óðals Cheddar
Smjör (til að smyrja og til steikingar)

Skref1

  • Smyrjið brauðsneiðar með sinnepi.
Skref 1

Skref2

  • Raspið yfir nóg af Óðals Búra fyrir eina samloku og síðan Óðals Cheddar fyrir aðra.
  • Sáldrið nokkrum timjan greinum með.
Skref 2

Skref3

  • Smyrjið brauðið að utan með nóg af smjöri.
Skref 3

Skref4

  • Galdurinn er svo að steikja á heldur lágum hita. Það liggur ekkert á og maður er síðan verðlaunaður fyrir þolinmæðina!
Skref 4

Höfundur: Ragnar Freyr Ingvarsson