Menu
Mexíkóskur kjúklingaréttur

Mexíkóskur kjúklingaréttur

Meiriháttar góður mexíkóskur kjúklingaréttur sem er allt í senn einfaldur í gerð, bragðgóður og fallegur fyrir augað!

Innihald

4 skammtar
kjúklingabringur
krydd (til dæmis chili explosion eða mexíkósk kryddblanda)
blaðlaukur, smátt skorinn
stór krukka salsa sósa (um 350 g)
rjómaostur frá Gott í matinn (tæplega hálf dósin)
Mexíkóostur, smátt skorinn
kjúklingateningur
nokkrar tortillaflögur
rifinn Mozzarella ostur frá Gott í matinn
tómatar, skornir í grófa bita
smátt saxað ferskt kóríander
18% sýrður rjómi frá Gott í matinn (180 g)
smjör til steikingar

Skref1

  • Hitið ofn í 180 gráður og kveikið undir pönnu á meðal háum hita.
  • Skerið bringurnar í teninga, kryddið og steikið upp úr smjöri þar til bringurnar hafa brúnast.
  • Leggið kjúklinginn í eldfast mót og stráið blaðlauknum yfir.

Skref2

  • Hellið salsa sósunni á pönnuna ásamt smátt skornum mexíkóostinum og rjómaostinum og hálfum kjúklingateningi.
  • Setjið 1 dl af vatni í salsakrukkuna, lokið á og hristið og hellið á pönnuna.
  • Hitið sósuna þar til allt bráðnar en það er allt í lagi að hafa smá Mexíkó osta bita í henni, bara betra.

Skref3

  • Hellið sósunni yfir kjúklingabringurnar.
  • Stráið yfir rifna ostinum og nokkrum lúkum af muldum tortillaflögum ásamt gróft skornum tómötum.
  • Bakið í 20 mínútur.
  • Toppið með ferskum kóríander og sýrðum rjóma frá Gott í matinn og berið fram t.d. með soðnum hrísgrjónum og salati.

Höfundur: Helena Gunnarsdóttir