Menu

Innihald

1 skammtar
laukur, skorinn smátt
hvítlauksrif, hökkuð
smjör
Salt, pipar og hálfur kjúklinga- eða grænmetisteningur
stór poki spínat (4-5 lúkur)
stór dós kotasæla (500g)
dós sýrður rjómi 18% (180g) frá Gott í matinn
múskat
rifinn parmesan ostur
hakkaðir tómatar í dós, krukku eða tilbúin pastasósa
Lasanjaplötur, þurrkaðar eða ferskar
poki rifinn pizzaostur

Skref1

  • Ofn hitaður í 170 gráður með blæstri, annars 180 gráður.

Skref2

  • Laukur og hvítlaukur steiktur upp úr smjörinu við frekar vægan hita þar til mýkist, saltað og piprað og teningurinn mulinn yfir.
  • Hitinn hækkaður aðeins og spínatinu bætt á pönnuna.
  • Steikið spínatið þar til það hefur linast.
  • Takið pönnuna af hitanum og bætið kotasælu, parmesan og sýrðum rjóma saman við. Kryddið með múskati, salti og pipar eftir smekk.

Skref3

  • Setjið smá tómatmauk neðst í eldfast mót.
  • Svo koma lasanjaplötur, spínatblanda, tómatamauk. Endurtakið þetta þrisvar, endið á spínatblöndu og tómatamauki.
  • Stráið osti yfir allt saman og bakið í 30 mínútur eða þar til lasanjaplöturnar eru eldaðar í gegn.
  • Gott er að láta lasanjað standa í 10 mínútur áður en það er borið fram.

Höfundur: Helena Gunnarsdóttir