Menu
Hægeldað lamb með þistilhjörtum og parmesanosti

Hægeldað lamb með þistilhjörtum og parmesanosti

Það fer einstaklega vel með lambakjöt að hægelda það. Það fer einnig einstaklega vel að hafa með því þistilhjörtu og parmesanost. Berið fram með kartöflum að eigin vali, soðnu nýju grænmeti, steiktu spínati og góðu brauði til að ná upp safanum. Verði ykkur að góðu!

Innihald

4 skammtar
lambalæri eða annar góður biti af lambakjöti
salt og svartur pipar
fersk myntulauf
parmesanostur, skorinn í grófar sneiðar
þistilhjörtu, marineruð í olíu
hvítlauksrif, gróft skorin
ólífuolía
þurrt hvítvín
vatn

Skref1

  • Hitið ofn í 150 gráður.
  • Saltið og piprið kjötið.
  • Athugið að hér er líka hægt að taka beinið úr lærinu og fletja kjötið út, setja fyllinguna inn í og rúlla upp. Það er rosa gott en stundum óþarfi, sérstaklega ef kjötið er haft lengi í ofninum.

Skref2

  • Fyllingin samanstendur af myntu, osti, þistilhjörtum og hvítlauk. Þetta má fara inn í rúlluna ef lambið er unnið á þann hátt, annars er þessu dreift ofan í ofnpottinn allt í kring um kjötið.

Skref3

  • Potturinn er hitaður á hellu, olíu hellt í pottinn og hún hituð.
  • Lambið er steikt í heitri olíunni og brúnað á öllum hliðum. Tekið úr pottinum, víni hellt í pottinn þar sem vínandinn gufar upp en vökvinn losar um gott bragð og krydd í pottinum.
  • Kjötið er sett í pottinn aftur og fyllingin allt í kring.
  • Þá fer vatn í pottinn. Lokið pottinum.

Skref4

  • Setjið pottinn í ofninn og leyfið lambinu að hægeldast á 150 gráðum í allt að fjóra tíma, fer að sjálfsögðu allt eftir stærð lærisins.
  • Ef þið viljið taka stytri tíma í eldamennskuna hækkið þið bara hitann.

Höfundur: Halla Bára Gestsdóttir