Menu
Rjómalöguð brokkolísúpa með rifnum osti

Rjómalöguð brokkolísúpa með rifnum osti

Súpuna er auðvelt að útbúa og tekur um 30 mínútur.

Uppskriftin dugir fyrir 3-4 fullorðna ef hún er borin fram með brauði.

Innihald

4 skammtar
smjör
laukur, smátt saxaður
gulrætur, rifnar niður með rifjárni
brokkolíhaus meðalstór, smátt skorinn
vatn
grænmetiskraftur
mjólk
matreiðslurjómi frá Gott í matinn
hveiti
salt
pipar
cayenne pipar af hnífsoddi
rifinn Pizzaostur frá Gott í matinn

Aðferð

  • Brokkolí, gulrætur og laukurinn er sett í pott og steikt upp úr smjörinu í 5-10 mínútur. Passið að hafa hitann ekki of háan því grænmetið á ekki að brenna.
  • Þegar grænmetið er orðið mjúkt þá er öllu nema ostinum bætt út í og suðan látin koma upp og hrært í um 10 mínútur.
  • Þegar súpan hefur þykknað þá er ostinum bætt út í og hrært þar til hann er alveg bráðnaður. Fínt er að smakka súpuna til og athuga hvort þið viljið salta meira.
  • Súpan er svo borin fram með heitu brauði til að fullkomna þetta.
Aðferð

Höfundur: Gígja S. Guðjónsdóttir