Menu
Sjónvarpskaka

Sjónvarpskaka

Það er fátt klassískara en gómsæt sjónvarpskaka með ískaldri mjólk. 

Innihald

1 skammtar

Kakan:

egg
sykur
vanilludropar
hveiti
lyftiduft
smjör
mjólk

Kókostoppur

smjör
púðursykur
mjólk
kókosmjöl

Skref1

  • Hitið ofninn í 175°C

Skref2

  • Þeytið saman egg og sykur þar til létt og ljóst og bætið þá vanilludropunum saman við.
  • Blandið hveiti og lyftidufti saman og sigtið í nokkrum skömmtum út í eggjablönduna og blandið vel á milli.
  • Bræðið smjörið við meðalhita og bætið þá mjólkinni saman við og hrærið saman, hellið síðan varlega saman við blönduna, blandið vel og skafið niður á milli.
  • Hellið í skúffukökuform sem er um 30 x 40 cm stórt. Gott er að klæða formið með bökunarpappír og spreyja með matarolíuspreyi (þá er auðveldara að ná kökunni úr þegar hún kólnar).
  • Bakið við 175°C í 30-35 mínútur eða þar til prjónn kemur hreinn út og kakan fer aðeins að gyllast. Útbúið kókostoppinn á meðan.

Skref3

  • Bræðið smjör, púðursykur og mjólk saman í potti við meðalhita. Bætið kókosmjölinu saman við þegar bráðið og blandið vel.
  • Þegar kakan er tilbúin hellið þið blöndunni jafnt yfir hana og dreifið úr með spaða og bakið áfram í um 10 mínútur eða þar til kókostoppurinn fer að gyllast.
  • Leyfið kökunni að kólna vel og lyftið síðan upp úr forminu og skerið í bita. Þessi kaka er dásamleg aðeins volg með ískaldri mjólk.

Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir