Menu
Nachos ídýfa

Nachos ídýfa

Bragðgóð og fersk ídýfa. 

Innihald

1 skammtar
salsasósa, medium (lítil krukka)
rjómaostur til matargerðar frá Gott í matinn, við stofuhita
rauðlaukur
Iceberg haus
rauð paprika
púrrulaukur
sveppir
konfekttómatar eftir smekk
nachos flögur

Aðferð

  • Setjið salsasósu og rjómaost í hrærivélarskálina og blandið þar til kekkjalaust og létt í sér.
  • Saxið rauðlauk mjög smátt og dreifið í botninn á þeirri skál/fati/bakka sem verður fyrir valinu.
  • Smyrjið rjómaostblöndunni yfir rauðlaukinn.
  • Saxið grænmetið smátt (nema tómata) og dreifið yfir blönduna (að sjálfsögðu má nota annað grænmeti, bara það sem ykkur þykir gott).
  • Skerið nokkra litla tómata til helminga og skreytið.
  • Gott er að kæla nacosdýfuna aðeins áður en hennar er notið en þó ekki nauðsynlegt.

Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir