Menu
Fiskisúpa

Fiskisúpa

Ilmandi góð fiskisúpa fyrir 4-6. Gott er að bera súpuna fram með góðu brauði en einnig er hún dásamleg ein og sér.

Innihald

1 skammtar
laukur
hvítlauksrif
gulrætur
rauð paprika
kókosmjólk
chili tómatsósa
tómatpúrra
vatn
rjómi frá Gott í matinn
þorskur
lax
rækjur
karrí, cayenne pipar, salt, pipar, fiskikrydd og fiskikraftur
ólífuolía til steikingar

Skref1

  • Saxið niður lauk og hvítlauk og steikið upp úr vel af olíu og karrí þar til þeir fara að mýkjast.

Skref2

  • Skerið gulrætur og papriku í strimla og bætið út í pottinn, kryddið með salti og pipar.

Skref3

  • Þegar grænmetið er tekið að mýkjast er kókosmjólk, chili sósu, tómatpúrru, vatni og rjóma hellt saman við, blandað vel og leyft að malla á meðan fiskurinn er skorinn niður.
  • Hér er gott að krydda súpuna til með ceyenne pipar, fiskikryddi og krafti.

Skref4

  • Þorskur og lax er skorinn í teninga og rækjurnar skolaðar.
  • Hægt er að hafa aðeins hefðbundnar rækjur en einnig er gott að blanda með smá af risarækju.

Skref5

  • Þegar súpan hefur fengið að malla í 20-30 mínútur er hún hituð að suðu og fiskurinn (og risarækjurnar ef þið notið slíkar) settur saman við í 5-7 mínútur (eftir stærð bitanna).
  • Að lokum er minni rækjunum bætt saman við, suðunni leyft að koma upp að nýju og þá er súpan klár!

Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir