< >

Grísk jógúrt
Grísk jógúrt er þykk, bragðmild og léttrjómakennd. Hún inniheldur 9,2% fitu, hún ótrúlega fersk og frískleg á bragðið. Gríska jógúrt er hægt að borða eina sér eða nota í alls konar mat. Hún þolir hita mun betur en venjuleg jógúrt og það má setja hana út í pottrétti, súpur og heitar sósur. Þar sem hún er þykk heldur hún vel lögun og það er tilvalið að setja skeið af grískri jógúrt út á ávexti eða nota hana í ostakökur og búðinga.
