< >

Rjómaostur
Rjómaostur til matargerðar er þéttur í sér, bragðmildur og ljúfur, bráðnar sérlega vel og hentar í margs konar rétti, til dæmis lasagna, pastarétti, bökur, pizzur, gratínrétti, pottrétti og margt fleira. Oft þarf ekki nema lítinn bita af rjómaosti til að gera sósuna eða súpuna einstaklega bragðgóða. Svo er hann auðvitað líka notaður í ostakökur, kökukrem og ýmiss konar ábætisrétti.
