< >

Hrein jógúrt
Hrein jógúrt er holl vara sem bæði er hægt að borða eina sér, e.t.v. með múslíi, eða blanda saman við hana bragðefnum að vild – til dæmis ávaxtamauki eða berjum. En hún hentar líka afar vel í ýmsa rétti, ekki síst kaldar sósur og ídýfur en einnig í maríneringar og fleira. Hana má líka nota í ýmiss konar brauð og kökur, til dæmis múffur.
