< >

Gratínostur
Það er óneitanlega afar þægilegt að hafa poka með rifnum osti til taks við matargerðina, hvort sem á að búa til pizzu, gera grænmetisgratín eða lasagna, útbúa pastarétt, gera ostasósu eða baka ostabollur – og nú bætist nýr rifinn ostur í hópinn. Gratínostur er blanda af Gouda og Mozzarella, þróuð sérstaklega fyrir ofnbakaða rétti, ostabrauð, bökur, grænmeti og fleira. Bragðmild, bráðnar vel og fær fallegan bökunarlit við bakstur.
