< >

Pizzaostur
Það er óneitanlega afar þægilegt að hafa poka með rifnum osti til taks við matargerðina, hvort sem á að búa til pizzu, gera grænmetisgratín eða lasagna, útbúa pastarétt, gera ostasósu eða baka ostabollur – og nú bætist nýr rifinn ostur í hópinn. Pizzaostur er blanda af Mozzarella og Maribó, þróuð sérstaklega fyrir pizzur. Milt bragð, góðir bræðslu- eiginleikar og teygjanleiki eins og fagmenn kjósa helst.
