< >

Matreiðslurjómi
Matreiðslurjómi er oft einmitt það sem vantar til að setja punktinn yfir i-ið – gera sósuna silkimjúka og ljúffenga, breyta hversdagslegum pottrétti í sælkeramat eða galdra fram himneska súpu. Matreiðslurjóma er líka tilvalið að nota í mjólkurhristing, búðinga og alls konar eftirrétti, út á ávaxtagrauta og í margt fleira, því að hann bætir flesta rétti.
