<>
-

Bakaður silungur með fetaosti og graslauk með léttri jógúrt sósuFyrir 4
Bakaður silungur 800 g silungsflök 100 g fetaostur 100 g vorlaukur fínt skorinn 2 msk graslaukur saxaður ekki mjög fínt 100 g haricot baunir fínt skornar • salt og nýmalaður svartur pipar
Aðferð:
Smyrjið eldfast form með smjöri, raðið silungsflökunum í formið og kryddið með salti og nýmuldum svörtum pipar. Stráið yfir vorlauk, strengjabaunum og graslauk. Setjið að lokum fetaostinn yfir. Bakið við 180°C í 10-15 mínútur fer allt eftir stærð silungsins. Einnig er hægt að nota lax í þennan rétt. Berið fram með sýrðum rjóma með graslauk og lauk, fersku salati og nýjum soðnum kartöflum.
Höfundur: Árni Þór Arnórsson


