<>
-

Mexíkófiskur með nachos og salsaFyrir 4
Mexíkófiskur 800 g ýsa eða þorskur 300 g nachos flögur 50 g blaðlaukur 100 g paprika 300 ml salsasósa 125 g rjómaostur með hvítlauk • salt og nýmalaður svartur pipiar
Aðferð:
Smyrjið eldfast mót með smjöri. Setjið nachosflögur í formið og raðið fiskinum í bitum ofan á. Kryddið með salti og pipar. Skerið grænmetið fínt niður og stráið yfir, setjið síðan salsasósuna yfir ásamt rjómaostunum. Bakið við 175°C í 25 mínútur.
Borið fram með salati með avakatóbitum.
Höfundur: Árni Þór Arnórsson


