<>
-

Saltkex fiskurFyrir 4
Saltkex fiskur 800 g ýsa eða þorskur 2 msk smjör 200 g saltkex 300 g paprikurjómaostur 125 g rjómaostur með svortum pipar • salt og pipar
Aðferð:
Smyrjið eldfast mót með smjöri. Myljið saltkexið í botninn, raðið fiskibitum á saltkexið og kryddið með salti og pipar. Klípið paprikurjómaostinn og rjómaostinn með svörtum pipar yfir fiskinn. Bakið við 175°C í 20 – 25 mínútur berið fram með kartöflum eða grjónum og salati.
Höfundur: Árni Þór Arnórsson


