-

Ofnbakaður þorskhnakki með austurlensku cous cousFyrir 4
Þorskur 700 g þorskhnakki • salt og rósa pipar
• svartur pipar
• ólífuolía
Cous Cous 750 ml vatn 500 g cous cous 2 tsk karrý 2 tsk kóríanderduft (má sleppa) 0,5 tsk chilliduft 1 teningur kjötkraftur 20 g papríkusmurostur 1 dl ólífuolía • salt eftir smekk
Grísk jógúrtdressing 0,5 dós grískt jógúrt 10 g fínt rifinn ferskur engifer 1 msk hunang • Fínt rifinn lime börkur af einni sítrónu
• Safi úr ½ líme
Þorskur aðferð:
Þorskhnakkinn er skorinn í u.þ.b. 160 g steikur og lagður á ofnplötu sem búið er að smyrja með ólífuolíu. Þá er blandaður með jöfnum hlutföllum svartur pipar og rósa pipar og malað yfir fiskinn en passa verður að ekki sé sett of mikið, 1 tsk ætti að vera nóg fyrir hverja steik fyrir sig. Þá er salti stráð yfir hnakkann í hæfilegu magni og um 1 msk af ólífuolíu helt yfir hverja steik fyrir sig. Þorksurinn er bakaður á 180°C í 10 mínútur.
Cous cous aðferð
Vatni er komið fyrir til suðu og öllum þurrkryddunum bætt í vatnið ásamt kjötkrafti. Þegar vatnið hefur náð suðu er því helt yfir cous cousið í skál og plastað vel, látið standa í 5 mínútur og sett svo aftur í pottinn. Þá er ólífuolíunni bætt út í og smurostinum í litlum skömmtum út í og náð upp góðum hita. Hræra þarf vel í cous cousinu því það er fljótt að festast við botninn og brenna. Þegar verið er að hræra er cous cousið er saltað til eftir smekk.
Grísk jógúrtdressing aðferð:
Öllu blanadað saman í skál og sett á cous cousið og þorkurinn lagður ofan á.Höfundur: Ungkokkar Klúbbur matreiðslumeistara
<>

