<>
-

SjávarréttargratínFyrir 4
Sjávarrétta gratín 200 g smálúða 8 stórir humarhalar 100 g tígrisrækjur 100 g kartöflur 50 g shallott laukur 150 ml mjólk 1 tsk karrý 10 g kóríander 50 g hveiti 50 g smjör 1 stk egg 1 pk camembert ostur Aðferð:
Smjör er brætt í potti og hveiti blandað við, mjólk er hituð í potti með karrýi og þykkt með hveiti og smjör blöndu. Shallottu laukurinn saxaður fínt og settur út í mjólkina, potturinn er tekinn af hellunni og eggi er pískað saman við . Kartöflurnar skornar gróft niður og soðnar í 6-8 mínútur í söltu vatni. Smálúðan, humarinn og tígrisrækjan er skorið gróft niður og sett út í mjólkurblönduna með grófsöxuðum kóríander og kartöflunum, þetta er allt sett í eldfast mót og camembert osturinn skorinn niður og dreift ofan á . Gott getur líka verið að nota rifinn ost yfir. Bakað á 220°C í 8-10 mínútur.
Höfundur: Ungkokkar Klúbbur matreiðslumeistara


