<>
-

Ofnbakaður fiskur með hrísgrjónum og léttsmurosti með sjávarréttumFyrir 4
Innihald 6 dl soðinn hrísgrjón 600 g ýsa (hægt að nota annan fisk) 1 msk smjör 1 stk meðalstór laukur 100 g sveppir 100 g broccoli 2 tsk madras karrí 300 g léttsmurostur með sjávarréttum • salt og nýmulinn svartur pipar
Aðferð:
Steikið grænmetið í smjörinu og kryddið með madras karrí og salti og pipar. Bætið í soðnum grjónum. Setjið í eldfast mót. Raðið fiskinum ofan á grænmetis og grjónablönduna. Klípið léttsmurostinn yfir. Bakið við 175°C í 20-25 mínútur.Berið fram með fersku salati
Höfundur: Árni Þór Arnórsson


