<>
-

Ítölsk ýsa með hreinni jógúrtFyrir 4-6 manns.
Ítölsk ýsa 1 kg ýsa (1-1,2 kg) 100 g rauðlaukur (saxaður) 50 g sólþurrkaðir tómatar (saxaðir) 500 ml hrein jógúrt 2 msk. pestó 1 glas fetaostur 20 stk. blandaður ólífur • Heilhveiti
• Olía til steikingar
Aðferð:
Veltið ýsubitunum upp úr heilhveiti og brúnið í olíu á pönnu. Setjið ýsubitana í eldfast mót. Stráið yfir söxuðum rauðlauk og sólþurrkuðum tómötum.
Blandið saman jógúrt og pestó og hellið yfir fiskinn og lokum setjið fetaostinn og ólífurnar yfir. Bakið í ofni við 180° í u.þ.b. 20-30 mínútur.Berið fram með salati og tómötum.
Höfundur: Árni Þór Arnórsson

