<>
-
_262_202.jpg)
Steikt ostaýsa með paprikusalsaOstaýsa 800 gr ýsuflök 3 egg 0,5 dl rjómi 1,4 tsk paprikuduft 100 gr pizzaostur 1 msk. smjör 1 msk. olía • Salt og nýmulinn svartur pipar
Paprikusalsa 1 stk. rauð paprika 1 stk. gul paprika 1 stk. græn paprika 1 stk. paprikuostur 0,5 dl söxuð steinselja 50 gr saxaður blaðlaukur 2 msk. ólífuolía • Salt og nýmulinn svartur pipar
Ostaýsa aðferð:Skerið ýsuna í bita. Hrærið saman egg, rjóma, paprikuduft, salt og pipar. Veltið ýsunni upp úr eggjablöndunni og steikið á báðum hliðum á pönnu í smjörinu og olíunni. Setjið ýsuna í eldfast mót og hellið restinni af eggjblöndunni yfir. Stráið pizzaostinum yfir fiskinn og eggjablönduna og bakið við 180°C í u.þ.b. 12 - 14 mínútur. Berið fram með soðnum kartöflum og paprikusalsa.Paprikusalsa aðferð:Skerið paprikina og ostinn í teninga blandið öllu saman og hrærið velHöfundur: Árni Þór Arnórsson

