<>
-
_262_202.jpg)
Grillaður lax með kaldri sinnepssósuLax 1 kg laxaflak með roði • salt og pipar
• olía til penslunar
Sósa 0,5 ds sýrður rjómi eða sambærilegt magn af ab mjólk 2 tsk grófkorna franskt sinnep 2 tsk fínt söxuð paprika • skvetta af sítrónusafa
• salt og pipar
Aðferð:
Hrærið saman öllu sem á að fara í sósuna. Bragðbætið með sítrónusafa, salti og pipar eftir smekk. Beinhreinsið laxaflakið og skafið hreistrið af roðinu ef þið viljið borða það. Penslið flakið með olíu á báðum hliðum. Setjið flakið í stóra fiskiklemmu í u.þ.b. 3 mínútur á hvorri hlið, en það fer eftir þykktinni á fiskinum. Einnig má pönnusteikja laxinn: Skerið flakið í fjóra hluta. Setjið olíu á pönnu og steikið við meðalhita á báðum hliðum, byrjið á roðhliðinni. Saltið og piprið.Berið laxinn t.d. fram með kartöflum með dilli, strengjabaunum eða góðu salati. Hellið sósunni yfir.Höfundur: Inga Elsa Bergþórsdóttir


