>
-

Bakaður fiskur í kotasælu og sýrðum rjóma með rækjum og jurtumBakaður fiskur 600 gr þorsk eða ýsuflök 100 gr blaðlaukur 1 stk raup paprika 200 gr rækjur 180 gr sýrður rjómi 200 gr kotasæla með hvítlauk 2 dl saxað ferskt basilikum 100 gr gratínostur • salt og nýmalaður svartur pipar
Aðferð:
Skerið fiskinn í bita og raðið í smurt eldfastmót, bætið í rækjunum, fíntskornum blaðlauk og papriku. Kryddið með salti og nýmuldum svörtum pipar. Hrærið saman sýrða rjómanum, kotasælunni og basilikum. Hellið yfir fiskinn og stráið loks gratínostinum yfir.
Bakið við 180° í sirka. 20 mínútur.Höfundur: Árni Þór Arnórsson


