-

Ofnbakaður fiskur með Miðjarðarhafsgrænmeti og jógúrtsósuFiskréttur 700 g roðflett og beinhreinsuð fiskflök – ýsa, þorskur eða annar hvítur fiskur (700-800 g) 2 msk olía 1 laukur, saxaður 1 kúrbítur, skorinn í bita 1 rauð paprika, skorin í bita 200 g kirsiberjatómatar 12 ólífur 150 g gratínostur • salt og pipar
Jógúrtsósa 250 ml jógúrt án ávaxta eða grísk jógúrt 1 msk ólífuolía 1 tsk hunang 2 hvítlauksgeirar, pressaðir • pipar og salt
Fiskréttur aðferð:
Hitið ofninn í 200°C. Skerið fiskinn í bita og kryddið þá með pipar og salti. Penslið eldfast mót með dálitlu af olíunni og raðið fiskinum í það. Hitið afganginn af olíunni á pönnu og látið laukinn krauma í henni í nokkrar mínútur. Bætið þá kúrbít, papriku, tómötum og ólífum á pönnuna og látið krauma við meðalhita í nokkrar mínútur, eða þar til grænmetið er farið að mýkjast dálítið. Kryddið með pipar og salti og hellið grænmetinu yfir fiskinn. Stráið ostinum yfir og bakið í ofni í 15-20 mínútur, eða þar til fiskurinn er rétt steiktur í gegn. Berið fram t.d. með salati og jógúrtsósu.Jógúrtsósa aðferð:
Blandið öllu vel saman, smakkið og bragðbætið eftir þörfum. Ef óskað er eftir þynnri sósu má hræra soði úr fiskfatinu saman við.
Höfundur: Nanna Rögnvaldsdóttir
<>


