<>
-
_262_202.jpg)
KjúklingaostalagsagneLasagne 700 gr eldaður kjúklingur (7-800) 1 stk meðalstór laukur 400 gr tómatar saxaðir 1 ds hunts tómatar (basil, gralic og oregano) 2 msk tómatpúrre 0,5 dl söxuð steinselja 0,5 dl fersk basilikum 200 gr rjómaostur 2 ds kotasæla 250 gr eða sirka 1/2 pakki lasagneplötur 200 gr gratínostur • salt og nýmulinn svartur pipar
Aðferð:Rífið kjúklinginn niður. Setjið kjúklinginn og laukinn á meðalheita pönnu og hitið. Setjið saxaða tómatana, tómatpúrruna og niðursoðnu tómatana saman við. kryddið með salti og pipar.
Látið malla saman í sirka 6-8 mínútur við vægan hita, bætið í steinselju og basilikum og að lokum rjómaostinum, gætið að sjóða ekki eftir að rjómaostinum er bætt í. Raðið í form á eftirfarandi hátt: 1 dós kotasæla, lasagneplötur, kjúklingablanda, 100 gr gratínostur, lasagneplötur, 1 dós kotasæla, kjúklingablanda, lasagneplötur, kjúklingablanda og loks restin af gratínostinum. Bakið við 170°C í 35-40 mínútur.Höfundur: Árni Þór Arnórsson


