<>
-
_262_202.jpg)
Haust sveppabakaBaka 1 pakki wewalka bökudeig 300 gr blandaðir sveppir 1 stk rauðlaukur 200 gr gratínostur 3 egg 2 dl matreiðslurjómi Aðferð:Finnið til fjögur form sirka 12x12 cm og sirka 3-5 cm djúp. Skerið deigið í fjóra hluta og þrýstið í formin.Steikið sveppina og rauðlaukinn. Kryddið með salti og pipar. Blandið saman sveppum, rauðlauk, matreiðslurjóma, eggjum og rifnum osti. Hellið blöndunni í skálarnar með deiginu.
Bakið við 165°C í sirka 30 mínútur. Berið fram með góðu nýbökuðu brauði og blönduðu salati.Höfundur: Árni Þór Arnórsson


