<>
-

Rækjubaka með kotasælu og rifnum ostiBakan er fyrir sirka 8-10 persónur.
Bökubotn 250 gr heilhveiti 70 gr smjör 1,5 dl ab-mjólk 0,5 tsk salt 3 msk vatn Fylling 4 stk egg 400 gr kotasæla me hvítlauk 100 stk smáttskorinn ferskur chili 100 gr blaðlaukur fínt sneiddur 200 gr rækjur 200 gr rifinn ostur • salt og nýmulinn svartur pipar
Bökubotn aðferð:
Blandið öllu saman í matvinnsluvél og hnoðið vel saman kælið deigið í sirka 30 mínútur. Rúllið út deiginu og setjið í hringform sirka 24 cm í þvermál setjið deigið vel upp á kantana. Pikkið deigið með gaffli og bakið við 200°C í sirka 10 mínútur.Fylling aðferð:
Hrærið eggin með gaffli og blandið með kotasælu, chilli, papriku, blaðlauk, rækjum og rifnum osti. Kryddið með salti og nýmuldum svörtum pipar. Hellið blöndunni í forbakaðan bökubotninn og bakið við 180°C í sirka 15-20 mínútur eða þar til fyllingin hefur stífnað.
Höfundur: Árni Þór Arnórsson


