>
-

Grænmetis heilhveitipasta með smurosta chilisósuFyrir 4-6
Pasta 500 g heilhveitipasta 50 g smjör 250 g sveppir 100 g rauðlaukur 150 g brokkólí 150 g rauð paprika 1 stk grænt chili saxað fínt 300 g soðnar kjúklingabaunir 3 dl matreiðslurjómi 250 g smurostur Tex mex • Salt og nýmulinn svartur pipar
Aðferð:Sjóðið heilhveitipasta samkvæmt leiðbeiningum á pakka. Athugið mjög gott er að kæla pastað eftir suðu áður en það er sett saman við sósuna. Skerið grænmetið í bita mega vera ágætlega stórir. Steikið grænmetið í smjöri á pönnu og kryddið með salti og pipar. Bætið við soðnum kjúklingabaunum. Hellið matreiðslurjómanum yfir og látið suðuna koma upp bætið þá í smurosti Tex mex. Látið ostinn bráðna vel saman við og hitið loks pastað í sósunni berið fram með góðu brauði.Höfundur: Árni Þór Arnórsson


