-

Lambafillet með kremuðu bankabyggiFyrir 4
Lambafillet 1 kg lambafillet fitu og sinhreinsað • salt og pipar (ný malaður úr kvörn)
Bankabygg 500 g bankabygg 1,5 l vatn 200 g villisveppaostur 2 öskjur sveppir (skornir hefilega og steiktir á pönnu. Smakkað til með salti) 1 stk skarlottulaukur (skrældur og saxaður) 4 hvítlauksgeirar (skrældur og saxaður) • salt
Köld sósa úr sýrðum rjóma 200 g sýrður rjómi 100 g extra virgin ólívu olía 0,5 stk sítróna (safi + rifinn börkur) 0,5 hvítlauksgeiri (fínt saxaður) 10 g steinselja (söxuð) • salt og pipar
Lambafillet aðferð:
- Fillet er steikt á pönnu á báðum hliðum í 1 -2 min. Saltað og piprað sett í eldfast mót og eldað á 160°c í 6 min og leyift að hvíla í aðrar 4 min. Skorið í hæfilega bita.Bankabygg aðferð:
- Vatn látið renna á byggið til að skola það, þá er byggið soðið í vatni þangað til það er soðið í gegn, Sigtað og sett í pott ásamt lauk, sveppum og osti, Smakkað til með salti og sítrónusafa.Köld sósa aðferð:
- Öllu blandað saman og smakkað til með salt og pipar.
Höfundur: Ungkokkar Klúbbur matreiðslumeistara
<>


