-

Jógúrt og jurtamaríneraðar lambalundir með tómat og fetasalatiFyrir 4.
Lambalundir 600 g lambalundir (600-800 g) 300 g rauðlaukur 350 ml grísk jógúrt 1 tsk. oregano (þurrkað) 2 tsk. ef það er notað ferskt 1 tsk. mynta (þurrkuð) 2 tsk. ef það er notað ferskt 1 tsk. rósmarín (þurrkað) 2 tsk. ef það er notað ferskt 2 hvítlauksgeirar (2-3 stkl.) 1 stk. sítróna (Börkur af ½ safi af 1 stk) 1 tsk. salt 0,5 tsk. nýmulinn svartur pipar Salat 4 stk. tómatar 100 g blaðlaukur 100 g agúrka 30 stk. blandaðar ólífur Lambalundir aðferð:
Blandið saman jógúrt, oregano, timjan, myntu, hvítlauk, sítrónuberki, sítrónusafa, salti og pipar. Setjið lambalundirnar saman við og marínerið í minnst 4-6 tíma. Best ef næst að marínera yfir nótt. Skerið rauðlaukinn í grófa bita og raðið í eldfast mót. Takið lambalundirnar og raðið á rauðlaukinn. Setjið í 200°C heitan ofn í 12-15 mínútur.
Berið fram með tómat og fetasalati með ólífum.
Tómat og fetasalat með ólífum aðferð:
Skerið tómatana í bita ásamt agúrkunum, skerið blaðlaukinn fínt og bætið saman við. Blandið fetaostinum saman við ásamt skornum ólífum.
Höfundur: Árni Þór Arnórsson
<>


