-
_262_202.jpg)
Fylltar Kalkúnabringur með villisveppaostasósu, rjómasoðin seljurót og sætarkartöflumKalkúnn 1 kg kalkúnabringur 20 korn mulinn grænnpipar • salt og pipar
Fylling 20 g þurrkaðir villisveppir 100 g sveppir 1 msk. smjör 1 stk. villisveppaostur steyptur 1 stk. egg 2 dl brauðraspur 100 g pecanhnetur saxaðar • salt og pipar
Villisveppaostasósa 250 g saxaðir sveppir 100 g fínt saxaður laukur 50 g smjör 3 dl kjúklingasoð (eða vatn og teningur) 1 stk. villisveppaostur steyptur 125 g rjómaostur með svörtum pipar 5 dl rjómi Rjómasoðin seljurót og sætarkartöflur 400 g seljurót 300 g sætar kartöflur 2 tsk. þurrkað timjan 1 peli rjómi • salt og nýmulinn svartur pipar
Kalkúnn aðferð:
Setjið villisveppina í bleyti í sjóðandi vatn. Látið standa i 15 mínútur, veiðið sveppina upp úr vatninu og saxið fínt ásamt sveppunum. Steikið sveppina á pönnu í smjörinu og setjið í skál. Rífið niður villisveppaostinn og blandið saman við kælda sveppina, setjið saman við restina af hráefnunum og hrærið vel saman. Skerið í hliðina á kalkúnabringunni svo að myndist vasi, setjið fyllinguna í með skeið og brúnið bringurnar á pönnu. Setjið á grind og kryddið með salti, pipar og grænum pipar. Steikið við 130°C á blæstri í 45-50 mínútur.Sósa aðferð:
Steikið sveppina og laukinn í smjörinu, bætið við kjúklingasoðinu og rjómanum. Skerið ostinn í bita og bræðið í sósunni við vægan hita, þykkið að vild.
Sætar kartöflur aðferð:
Skerið seljurót og sætar kartöflur í teninga. Setjið í eldfast mót kryddið með timjan, salti og pipar. Hellið rjómanum yfir og bakið við 150°C í u.þ.b. 35 mínútur.
Höfundur: Árni Þór Arnórsson
<>

