<>
-
_262_202.jpg)
Svínalundir með hnetu og rjómaostfyllingu og með epla og appelsínu jógúrt salatiFyrir 4.Svínalundir 800 g svínalundir (800-1000 g) • olía til steikingar
• salt og nýmulinn svartur pipar
Fylling 100 g pecanhnetur 125 g rjómaostur með kryddblöndu 2 dl brauðraspur 10 stk. græn piparkorn 1 stk. egg • salt og nýmulinn svartur pipar
Sósa 5 dl matreiðslurjómi 125 gr rjómaostur með kryddblöndu 125 gr rjómaostur með svörtum pipar 1,5 dl appelsínusafi 1 dl soð (eða vatn og kraftur) Salat 2 stk. appelsínur (appelsínulaufin skorin út) 2 stk. epli skorin í bita 350 g grísk jógúrt 0,5 tsk.kanill 2 msk. flórsykur Svínalundir aðferð:
Hreinsið sinarnar af grísalundunum. Stingið sleifarskafti inn í hverja lund til að búa til pláss fyrir fyllinguna.Fylling aðferð:
Setjið pecanhnetur í matvinnsluvél og maukið örlítið, bætið í restinni af hráefnunum og maukið saman. Kryddið með salti og pipar.
Sprautið fyllingunni inn í lundirnar gott er að nota sprautupoka.
Brúnið lundirnar í olíu á pönnu og setjið í ofn. Bakið við 170°C í u.þ.b. 15-20 mínútur.Sósa aðferð:
Sjóðið allt saman og þykkið eftir þörfum.Salat aðferð:
Hrærið saman gríska jógúrt, kanil, appelsínusafan úr útskornu appelsínunum og flórsykur. Bætið í eplum og appelsínum. Hrærið vel saman.
Höfundur: Árni Þór Arnórsson

