<>
-

Lambakjöt í rjómaosti og kotasæluLambakjöt réttur 1 kg lambakjöt best að nota lundir eða fituhreinsað fillet 1 msk rósmarín 250 gr sveppir 100 gr kúrbítur 100 gr rauðlaukur 100 gr sólþurrkaðir tómatar, saxaðir 400 gr rjómaostur 2 ds kotasæla með hvítlauk 1 glas fetaostur að eigin vali • salt og nýmulinn svartur pipar
Aðferð:
Brúnið kjötið á pönnu og kryddið með rósmarín, salti og svörtum pipar. Setjið í eldfastmót skerið grænmetið í bita og steikið á pönnunni. Hellið yfir kjötið. Stráið sólþurrkuðum tómötum yfir. Hrærið saman kotasæluna og rjómaostinn og smyrjið yfir kjötið og grænmetið.Myljið fetaostinn yfir og bakið í ofni við 170°C í sirka 20 mínútur.Berið fram með fersku salati og góðu brauði.Höfundur: Árni Þór Arnórsson


