<>
-
_262_202.jpg)
Einfaldir grillpinnar með osta- og jógúrtmarineringuFyrir 4-6 persónur
Marinering 2 tsk rifinn engiferrrót 2 hvítlauksrif, kramin 100 gr grísk jógúrt 1 msk hveiti 5 msk rifinn ostur 0,25 tsk cayennepipar, 1-2 stk ferskur rauður eða grænn chili 1 tsk paprikuduft, má líka vera reykt paprikuduft 1 msk ferskt kóríander • salt og malaður svartur pipar, eftir smekk
Grillpinnar 900 g kjúklingabringur eða lambakjöt, skorið í 2.5 cm bita 8-12 grillpinnar
Grillpinnar aðferð:Setjið allt sem á að fara í maríneringuna í matvinnsluvél og maukið saman, setjið kjötið út í og látið það marínerast í 30 mínútur. – 2 klst. í kæliskáp.Þræðið kjötið á grillpinnana. Grillið kjötið á öllum hliðum við meðalháan hita í 8-9 mínútur.Setjið tvo grillaða kjúklingapinna ofan á kúskússalatið á bls. 14 í blaðinu Gott í matinn vor 2009 og setjið 2 msk. af raitu-jógúrtsósu til hliðar við salatið.Höfundur: Inga Elsa Bergþórsdóttir

