<>
-

Lamb TandooriAthugið að hægt er að gera þessa sömu uppskrift með kjúklingi í staðin fyrir lambakjöt.
Lamb Tandoori 1 kg beinlaust lambakjöt 250 g hrein jógúrt 5 msk Tandoori masal karry paste 1 msk engifer fínt saxaður 1 msk hvítlaukur fínt saxaður • Salt (má sleppa)
• Olía til steikingar
Aðferð:
Hrærið saman jógúrti, engifer, hvítlauk, tandoori past og smakkaðu til með salti. Taktu 1/3 af marineringunni frá, veltið kjötinu upp úr marineringunni. Láttu standa í kæli í amk 2 klst. eða yfir nótt.
Steiktu kjötið í olíu á pönnu eða bakaðu í ofni. Berðu restina af marineringunni fram sem sósu.
Berðu fram með fersku grænmeti og salati.Höfundur: Árni Þór Arnórsson

